Monday, February 11, 2013

Takk kærlega fyrir helgina 8.-10 feb.

Sæl öll, þið sem tengist 5fl. karla á yngra ári í handboltanum.
Takk fyrir þáttökuna á Þín Verslun mótinu núna um helgina í Austurbergi og Seljaskóla sem við hjá ÍR Handbolta sáum um.    Lið ykkar voru til sóma og gaman að sjá þessa hressu og skemmtilegu stráka í leikjunum um helgina.

Við þökkum ykkur foreldrum sem stóðu vaktina með okkur þessa helgi kærlega fyrir , því án ykkar hefði ekki verið hægt að halda þetta stóra mót.
     
Við vorum einnig ánægð með þjálfara allra liða fyrir að hafa sýnt dómurum biðlund sem voru að klára dómaranámskeið þessa helgi, og því að stíga sín fyrstu skref í dómgæslu.   Við reyndum eftir bestu getu að seja reyndan dómara með óvönum, þó ekki hafi það tekist á öllum leikjum en við vonum samt að ekki hafi hallað á neinn í þeim málum. 

Okkur fannst mótið annars takast vel og vonum að þið séuð sama sinnis.    

Við vildum gjarnan deila eitthvað í kringum 1000 myndum með ykkur sem voru teknar á mótinu. Hér fyrir neðan eru slóðir inn á færslu tengda mótinu okkar þar sem hægt er að fara áfram inn á myndaalbúmin. 

Endilega merkja ykkur og liðsmenn inn á myndirnar á Facebook til að þær dreifist á sem flesta , þannig náum við mestri útbreiðslu á myndunum og náum að gera handboltann skemmtilegan og vonandi ná inn fleiri iðkendum í þessa skemmtilegu íþrótt okkar.  
Vinsamlegast deilið líka slóðunum áfram inn á bloggsíðum ykkar flokka eða sendið áfram til foreldra stelpnanna svo að sem flestir fái að njóta myndanna. 
 
Föstudagur 200 myndir á Facebook ÍR Handbolta

Laugardagur fyrir hádegi 200 myndir á Facebook ÍR handbolta
 
Laugardagur eftir hádegi 200 myndir á Facebook ÍR Handbolta
 
Sunnudagur 200 myndir á Facebook ÍR Handbolta
 
ALLAR MYNDIR Á MYNDASÍÐU HJÁ 5.FL. KA – UPPLAGT TIL AÐ SÆKJA MYNDIR OG SETJA Á YKKAR BLOGG.

Öll úrslit 3. Íslandsmeistaramót 5.fl. ka Y Þín Verslun Mótið. 
http://irmotin.blogspot.com/p/urslit.html

 
https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEidqnNZVfq66MIXx57By2QZVo1XcUX3OcEi8zGe-ClbdZL1n8i-8xHfRNHUPtdv5XY9OrJ4lKjpV0CdAfKhTPgfdKuOPr40rhE36W1CgK12Jox_F1Jl5o8tz3tiR8uBQC10I0BOuRfSNG8e/s1600/IR_Handbolti+Facebook.jpg  
 
VERIÐ VINIR OKKAR Á FACEBOOK OG FÁIÐ ALLAR UPPFÆRSLUR OG MYNDIR FRÁ LEIKJUM OG MÓTUM OKKAR BEINT Í FRÉTTAVEITUNA YKKAR
 

2 comments:

  1. Má ekki "tagga"/merkja inn á myndirnar ? Fljótlegasta leiðin til dreifingar á fési...
    Kristín Ólamamma

    ReplyDelete
  2. Rétt, endilega merkja alla inn á myndirnar til að þær fari sem víðast.

    ReplyDelete