Thursday, February 27, 2014

Bikarhelgin - Pistill úr klefanum frá Bjarka Sig.

Sælir kæru ÍR-ingar - velkomin í  bikarhelgina okkar.

Við áttum stórkostlega "Final Four" bikarhelgi á síðasta ári þegar við lönduðum bikarnum. Þá var Höllin máluð blá að okkar hætti og stuðningurinn var frábær á báðum leikjum okkar enda slógum við aðsóknarmetið þá helgi.  

Nú ætlum við að endurtaka leikinn frá því í fyrra og taka þessa bikarhelgi með trompi,  því með ykkar stuðningi í stúkunni er fátt sem stöðvar okkur ÍR-inga.      

Við mætum mjög góðu liði Aftureldingar í undanúrslitunum á föstudeginum  28. Feb. kl. 17:15.    Afturelding hefur ekki tapað leik á þessu tímabili og eru strákarnir þar búnir að  slá út tvö  úrvalsdeildarlið á leið sinni í Final Four.     Þeir eru því sýnd veiði en ekki gefin,  enda er mjög  mikilvægt að fjölmenna á leikinn í ÍR-litunum og styðja okkur strákana í að komast í gegnum hann og  alla leið í úrslitaleikinn, sem verður síðan á laugardaginn kl. 16:00 gegn FH eða Haukum.

Undirbúningur hefur gengið vel í okkar herbúðum  og höfum við farið vel yfir það á video fundum hvernig andstæðingar okkar spila.     Okkar plan liggur því  ljóst fyrir enda eru leikmenn og skipulagið klárt.   

Strákarnir okkar mæta því fullir sjálfstrausts og tilhlökkunar í þessi verkefni sem býða okkar núna um helgina, og með ykkar stuðning og stemningu förum við alla leið og höldum bikarnum okkar í Breiðholti þar sem hann á heima.

Það er síðan okkar von að ÍR Handbolti  landi tveimur bikarmeisturum þessa helgi því Elli Ísfeld og strákarnir í 4.fl. ka.E hafa einnig tryggt sig inn í úrslitaleikinn í bikarnum og spila þeir við ÍBV kl. 14:30 á sunnudeginum í Höllinni.
Við óskum þeim góðs gengis og vitum að ÍR-ingar fjölmenna til að styðja þá líka. 

Sjáumst í Höllinni  
Áfram ÍR !!

Kv.
Bjarki Sig.

Bikarúrsliti - 4.fl. ka E. ÍR - ÍBV |sun. 2. mar. kl. 14:30 | Coca Cola bikar Laugardalshöll

Þetta er ekki aðeins stór helgi sem er framundan fyrir meistaraflokk karla í bikarnum, því strákarnir í 4.fl. karla eldra eru einnig búinn að tryggja sig inn í Höllina í úrslitaleikinn í bikarnum á sunnudeginum.

Leikur þeirra við ÍBV hefst kl. 14:30  í Laugardalshöll en þar verður umgjörðin glæsileg og engu til sparað.
Það er alltaf draumur hvers leikmanns að komast í höllina og leika bikarúrslitaleik og þessir leikir eru þeir leikir sem allir yngri leikmenn vilja prufa að leika áður en þeir fara á stórasviðið með meistaraflokkunum

Ókeypis er á alla leiki á sunnudeginum og hvetjum við því alla ÍR-inga til að mæta í Höllina og hvetja strákana okkar áfram og styðja þannig við bakið þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í úrslitaleik Coka Cola bikarsins !


Flottir fulltrúar ÍR Handbolta 

Ókeypis er á alla leiki á sunnudeginum og hvetjum við því
alla ÍR-inga til að mætaí Höllina og styðja strákana

Sunday, February 9, 2014

3.umferð Íslandsmóts - 5.fl. ka. yngra Deildarmeistarar.

Flottir strákar í 5.flokk yngra árs sem sigruðu sína deild með töluverðum yfirburðum í dag. Strákarnir voru vel að sigrinum komnir, leikgleðin skein úr andlitunum enda var stefnan strax tekin á sigur hjá þessum efnilega hóp.

Myndir komnar inn á Facebook ÍR Handbolta 


Myndaalbúm á Facebook ÍR Handbolta 
Verið vinir ÍR Handbolta á Facebook og fáið þannig fréttir og myndir frá starfinu beint í fréttaveituna ykkar :)

Friday, February 7, 2014

Við hvetjum foreldra til að taka myndir á mótum og koma þeim til þjálfara á USB lyklum.

Við hvetjum foreldra til að taka myndir á mótum núna um helgina hjá yngri flokkum okkar og koma myndunum síðan til þjálfara okkar á USB lyklum.  Þjálfarar koma myndunum síðan á vefstjóra ÍR Handbolta.   

 

Til gamans látum við tölfræði yfir skoðun á myndum á Facebook ÍR Handbolta Tímabilið  sep. 2013 - feb. 2014 fylgja með þar sem súla = fjöldi mynda skoðaður viðkomandi dag. 

 

Toppar í kringum mót hjá yngri flokkum sýna að myndir eru skoðaðar allt að 46þúsund sinnum á dag næstu daga eftir mótin hjá krökkunum.    Myndir frá þorrablóti voru skoðaðar 56 þús. sinnum pr.dag í 5 daga í röð.  Síðan er góður stígandi í myndaskoðun í feb. af myndum á mótum hjá 7.fl. , 6 fl. og 5.fl. en þá settum við einnig inn pósta á bloggsíður flokka um að myndir væru komnar inn á Facebook ÍR .

 

Mynd 1 - Verið vinir okkar á Facebook ÍR Handbolta - http://facebook.com/Handbolti

 

 

 

 

Tuesday, February 4, 2014

Mót hjá Aftureldingu næstu helgi

Jæja þá er komið að næsta móti og fer það fram í Varmá (heimavelli Aftureldingar í mosó). Það er mæting 40 mínútum fyrir fyrsta leik.  ( Ekki æfing á föstudaginn vegna mótsins )

ÍR1
Adam, Alexander, Aron, Viktor, Gunnar, Atli, Hafsteinn, Davíð.
Föstudagur 
15:40 2.deild - B ÍR 1 Víkingur 1
17:00 2.deild - B Fram 2 ÍR 1
Laugardagur 
15:00 2.deild - B ÍR 1 Selfoss 2
16:20 2.deild - B Fjölnir ÍR 1

ÍR2
Heiðar, Marek, Daníel, Róbert, Kalli, Jóhann, Hjálmar, Benni, (Bergvin)
Föstudagur 
17:40 3.deild - A Valur 2 ÍR 2
19:40 3.deild - A ÍR 2 Afturelding 3
Laugardagur
11:00 3.deild - A HK 2 ÍR 2
Svo er einn aukaleikur þegar deildin er búin sem eru eins konar úrslitaleikir.

-Arnór Freyr.


Verið vinir ÍR Handbolta á Facebook 

Monday, February 3, 2014

Strákarnir stóðu sig vel á mótinu hjá FH um helgina - Myndir komnar á Facebook ÍR Handbolta

Arnór og strákarnir í 5.fl. yngra tóku þátt í móti hjá 5.fl. eldra sem haldið var hjá FH um helgina. Strákarnir stóðu sig frábærlega og gerðu 3 jafntefli, unnu einn leik og töpuðu einum, enda voru þeir ánægðir í mótslok.

Myndir komnar inn á Facebook ÍR Handbolta.


Myndaalbúm á Facebook ÍR Handbolta 
Smellið á myndina  til að skoða myndaalbúmið á Facebook ÍR Handbolta
Verið vinir ÍR Handbolta á Facebook til að fá fréttir og myndir beint í fréttaveituna ykkar