Sunday, October 28, 2012

Æfingagjöld haustönn 2012

Kæra foreldri/forráðamaður.

Því miður hefur gengið illa að innheimta æfingagjöld á haustönn 2012 hjá handknattleiksdeild ÍR.  Mjög mikilvægt er að við fáum æfingagjöldin greidd á réttum tíma svo við getum borgað þjálfurum laun.  Ef þú hefur ekki þegar greitt þá biðjum við ykkur vinsamlega að drifa í því.

Til að greiða er hægt að fara inn á þessa slóð: 
https://ir.felog.is/ og greiða með kredit korti eða hafa samband við Sigrúnu á skrifstofu ÍR í síma 5877080 eða senda henni póst í sigrun@ir.is 
Sigrún aðstoðar ykkur gjarnan við allt sem tengist 
frístundastyrknum sem þið getið notað til að greiða æfingagjöldin að fullu eða að hluta eftir því sem við á hjá hverjum og einum.

Kveðja

Barna og Unglingaráð handknattleiksdeildar ÍR

 

 

Friday, October 12, 2012

Leikjaplan fyrir Gróttumótið 12.-14. október

ÍR er með 4 lið. Leikmenn fá upplýsingar um liðsskipan fljótlega, verið að raða í lið fram á síðustu stundu vegna veikinda.

  • ÍR-1, ÍR-2 og ÍR-4 eiga öll að spila leiki á föstudaginn. 
  • Fyrsti leikur hjá ÍR-1ÍR-2 og ÍR-4 er kl.15:55 föstudag.
  • Strákarnir eiga að vera klárir hálftíma fyrir leik kl.15:25. >>KORT<<


  • ÍR-3 spila sína leiki á sunnudaginn.
  • Fyrsti leikur hjá ÍR-3 er kl. 09:10 sunnudag.
  • Strákarnir eiga að vera klárir hálftíma fyrir leik kl.08:40. >>KORT<<


Klikkið á töflu hér fyrir neðan til að stækka


Kv. þjálfarar.

Thursday, October 11, 2012

11. október 2012

Nú þurfa strákarnir í meistarflokknum á stuðningi okkar að halda. Því ætlum við að hittast næsta fimmtudag í Undirheimum klukkan 6. Það kostar 1000 krónur inn á mann en innifalið í þeim pening er pizza, brauðstangir og gos. Eftir að við höfum fengið okkur að borða ætlum við að fara upp, horfa á leikinn og hvetja strákana áfram. Að sjálfsögðu mætum við í ÍR-búningnum. Foreldrar mætið með strákunum og förum saman á leikinn. Það þarf að skrá þátttöku hér fyrir neðan.

Kveðja
Foreldraráð

ÞÍN VERSLUN Seljabraut

Núna þegar keppnisferðir hjá yngriflokkum út á land eru að fara af stað langar okkur til að benda á að Símon í Þína Verslun á Seljabraut er með góðan afslátt fyrir barna og unglingaflokka ÍR Handbolta.   Hafið samband við Símon og hann gerir mjög vel við ykkur, bæði verðlega og þjónustulega séð!  Þín Verslun Seljabraut er aðalstyrktaraðili Barna og unglingastarf ÍR Handbolta.

 

FACEBOOK síða Þín Verlun Seljabraut