Minnum á handboltaskóla ÍR sem byrjar á þriðjudaginn!
Tveggja vikna handboltanámskeið fyrir krakka fædd 2004-1997. Æfingar standa yfir í tvær klukkustundir dag hvern og fara fram í íþróttahúsinu við Austurberg.
Skólastjóri er Sigurjón Björnsson(Sjonni)! Sjonni er hokinn af reynsu, en hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur þjálfað handbolta í 6 ár, allt frá 6. Flokki upp í 3. Flokk. Sjonni hefur spilað í meistaraflokki síðan 2006 og varð íslandmeistari með HK 2011 og bikar- og meistari meistarana með ÍR 2013. Sjonni er uppalinn ÍR-ingur og hefur alla sinn ferill leikið með ÍR utan tvö ár sem hann lék með HK.
Takmarkaður fjöldi kemst að í hvort námskeið og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Námskeiðsvikur:
10.-24. júní
5.-18. ágúst
Æfingatímar og aldursflokkar:
10-12 ára(02-04) kl. 09:00-11:00
13-14 ára(01-00) kl. 11:30-13:30
15-16 ára(99-97) kl. 13:30-15:30
Verð: 14.500 kr.
Skráning á www.ir.is
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki ÍR í síma 587-7080
ÍR Handbolti - 5. flokkur karla YNGRI
Skráðu netfangið þitt hér hægra megin á síðunni! Þannig færðu tilkynningar hér á bloggsíðunni sendar í netpósti.
Sunday, June 8, 2014
Handboltaskóli ÍR
Thursday, May 15, 2014
Handboltavakan
Við ætlum að byrja klukkan 18. Það kostar 1000 krónur inn.
Foreldraboltinn verður klukkan 20.
Eftir hann munum við fá okkur pizzur. Síðan munum við spila handbolta og hafa gaman til klukkan 1.
Það má hafa með sér nammi. Ávextir ekki vitlaus aukabiti.
Það fær enginn að fara út úr Austurberginu án fylgdar fullorðinna.
kveðja
Þjálfarar 5. flokks karla og kvenna
Wednesday, May 7, 2014
Tuesday, May 6, 2014
Eurovision eða Handbolt í kvöld ?
Friday, April 25, 2014
Mót HK - 5fl. Y (2001 árg)
Hæhæ næsta mót er núna um helgina, þetta er eldra árs mót og mæta allir sem eru fæddir 2001 ! HK heldur mótið og það er bæði spilað í Kórnum.
Fyrstu leikir eru á föstudaginn og því verður ekki æfing. Það er mæting 40 min fyrir fyrsta leik
Föstudagur.
16:20 2A Fylkir 2 ÍR 3
17:40 2A ÍR 3 Stjarnan 1
Laugardagur.
11:00 2A KA 2 ÍR 3
12:20 2A ÍR 3 Þór Ak. 1
-Arnór Freyr
17:40 2A ÍR 3 Stjarnan 1
Laugardagur.
11:00 2A KA 2 ÍR 3
12:20 2A ÍR 3 Þór Ak. 1
-Arnór Freyr.
Sunday, March 23, 2014
Mót 5.fl. ka Y 28.-30 mars. Skráning foreldra í stöður í Austurbergi og Seljaskóla
Vinsamlegast skráið ykkur sem tímaverði/ritara á amk. 3. leiki í röð í skjalinu hér að neðan - þar sem við þurfum að manna völl 1 og 2 í Austurbergi og völl 1 í Seljaskóla.
Við höfum haldið mörg mót og yfirleitt hefur gengið mjög vel að fá foreldra viðkomandi flokks til að vinna á þeim mótum því án ykkar hjálpar getum við ekki haldið svona mót fyrir börnin okkar!
Foreldrar - Tímaveriðr & Ritarar skráning > https://docs.google.com/spreadsheet/ccc?key=0ArXy0rqrXH8ZdFN6NzZzS2I0MmxMMGJnMlo5ZjBGUlE&usp=drive_web#gid=6
![]() |
Foreldrar og BOGUR á móti í Austurbergi. |
![]() |
Hússtjórn , Ritari og tímavörður |
![]() |
Foreldrar að störfum á móti í Austurbergi. |
Barna og unglingaráð ÍR Handbolta
Tuesday, March 11, 2014
AÐALFUNDUR HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍR
Aðalfundur handknattleiksdeildar ÍR verður haldinn miðvikudaginn 19. mars n.k.
Fundartími: miðvikudaginn 19. mars 2013 kl. 19:30
Staður: ÍR heimilið í mjódd, 2. hæð
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.
Við hvetjum allt áhugafólk um ÍR-handbolta að mæta og kynnast starfinu betur. Framboð hafa borist í allar stöður stjórnar en við hvetjum fólk til að íhuga að koma og taka þátt.
Kveðja Stjórnin