Sunday, March 31, 2013

Foreldrafundur

Haldin verður foreldrafundur vegna Akureyrarferðarinnar á miðvikudaginn 3. apríl klukkan 20 í ÍR-heimilinu.

Þar verður farið yfir atriðin sem varðar ferðina. Einnig þarf að greiða 13.000 krónur inn á reikning
0115-05-68235 kt:521087-1109 fyrir 5. apríl. Setja í skýringar nafn drengs.

Foreldraráð

Sunday, March 17, 2013

Akureyri

Það er mánuður þangað til að við förum til Akureyrar. Mótið þar er helgina 12. -14. apríl.
Við þurfum að fá forskráningu á þeim sem ætla að fara norður. Áætlaður kostnaður vegna ferðarinnar er 13.000 krónur og inn í því er mótsgjaldið sem er 10.000 krónur.

Foreldrafundur verður haldinn þann 3. apríl í ÍR-heimilinu kl. 20.

Foreldraráð

Thursday, March 14, 2013

Mótið um helgina

Hérna eru liðin á mótinu hjá Aftureldingu


ÍR 1

Rökkvi, Ævar, Brynjar, Sævar, Dagur, Davíð,                                 Sindri, Gummi, Snorri

Föstudagur  mæting kl. 16:00

kl. 16:40 ÍR1 – Stjarnan

kl. 18:00 KA – ÍR1

Laugardagur mæting kl. 8:00

kl. 8:40 ÍR1 – Afturelding

kl. 11:20 Selfoss – ÍR1

kl. 12:40 ÍR1 - Fylkir

 

ÍR 2

Halldór, Kristófer, Tristan, Bergþór, Hafsteinn,                            Ingvar, Matti, Hafþór, Steinar, Billi

Föstudagur  mæting kl. 15:20

Kl. 16:00  ÍBV – ÍR2

kl. 18:40  ÍR2 – Þór

Laugardagur mæting kl. 10:00

Kl. 10:40 KR2 – ÍR2

kl. 12:00 ÍR2 – KR1

kl. 13:20 ÍR2 – ÍR4

 

ÍR 3

 Máni, Daniel, Aron, Valdimar, Bjarni, Óli, Dritro, Baldur,                       Friðrik, Aron, Krissi

Föstudagur mæting kl. 16:40

kl. 17:20 Afturelding – ÍR3

kl. 18:40 ÍR – Fylkir

Laugardagur mæting kl. 12:40

kl. 13:20 KA – ÍR3

kl. 14:40 ÍR3 - Víkingur

 kveðja
Diddi

Wednesday, March 6, 2013

Æfingar falla niður í dag 6.mars hjá ÍR Handbolta vegna veðurs

Í ljósi tilmæla lögreglu í dag um að hvetja fólk til að vera heima vegna þess að það er ekkert ferðaveður og ljóst að Íþróttavagn ÍR kemst ekki ferða sinna hefur verið ákveðið að fella niður alla æfingar í dag hjá ÍR Handbolta. Tilkynningar komnar inn á öll bloggsvæði og þjálfarar senda einnig póst á foreldra til öryggis.

 

Monday, March 4, 2013

Ef þú kaupir miða af ÍR í forsölu á Símabikarinn rennur aðgangseyrir að öllu leiti til okkar, en ef þú kaupir miða á leikdag rennur aðgangseyrir til HSÍ.

Það er risahelgi framundan í handboltanum þann 8. – 10. mars þegar nýir bikarmeistarar verða krýndir.   Þó að fyrirkomulagið í ár sé ekki með sama hætti og undanfarin ár er óhætt að lofa því að þessi helgi verður frábær skemmtun fyrir alla handboltaáhugamenn.  Okkar undanúrslitaleikur verður fös. 8 mars. kl. 17:15 á móti Selfoss í Laugardalshöll og vonandi tryggjum við okkur farmiðann í úrslitaleik Símabikarsins með ykkar hjálp.
Ef þú kaupir miða af ÍR í forsölu á Símabikarinn rennur aðgangseyrir að öllu leiti til okkar, en ef þú kaupir miða á leikdag rennur aðgangseyrir til HSÍ.
Stuðningsmenn ÍR kaupa því miða á þennan leik í forsölu hjá Leiksport Hólagarði eða Fiskbúð Hólmgeirs Mjódd og sjá þannig til þess að aðgangseyrir renni beint og óskipt til okkar, og styrkja þannig starf okkar hjá ÍR Handbolta.   

Ef þú kaupir miða af okkur í forsölu átt þú einnig kost á glæsilegum vinningum sem eru m.a.  Keppnistreyja ÍR sem er árituð af öllum leikmönnum meistaraflokks og keppnisbolti (Select) áritaðan af öllum leikmönnum meistaraflokks.
Kveðja
Ingimundur „Diddi“ Ingimundarson
Mynd 1 Ingimundur "Diddi" Ingimundarson